Consejo 15/ Council 15/ Ráð 15
 
www.universal-human-nation.net
 
 
   
   
 
Viðfangsefni okkar:
 
 
Andofbeldi  
 
Menntaverkefni á Haiti  
   
   
  Español English  


Ráð 15 | Menntaverkefni á Haiti

Íslendingar hjálpa Haitibúum að hjálpa sér sjálfir

Eitt stærsta menntunarátak í heimi

Vegna stærðar verkefnisins og þeirrar staðreyndar að það er ekki styrkt af opinberum aðilum þá bráðvantar okkur hjálp núna til að greiða kennurum í verkefninu laun. Það eru að jafnaði 3 kennarar við hvern skóla og þótt hver kennari fái ekki nema sem samsvarar 10 þús krónum í árslaun, þá er hér um að ræða mikinn fjöldi kennara. Auk þessa þarf að kaupa inn blýanta og stílabækur fyrir fullorðinsfræðslu okkar á Haiti. Þetta er eitt stærsta lestrarátak í heimi með um 100 þúsund nemendum.

Þú getur hjálpað

Ef þú getur fundið það hjá þér að leggja fram einhverja peningaupphæð í eitt skipti, kannski 2000 til 5000 krónur eða styðja verkefnið mánaðarlega með lágri upphæð ca. 500 - 1000 krónum þá ertu að hjálpa börnum og fullorðnum að læra að lesa og skrifa sem mun gera þeim kleyft að skapa sér betra líf. Ef þú ert til í þetta langar mig að biðja þig líka að senda þetta bréf áfram til allra þeirra sem þú telur að hefðu áhuga á að leggja þessu verkefninu lið. Hvetja þá til að láta eitthvað af hendi rakna, því það mun koma að mjög góðum notum já og svo biðja þá að láta þetta ganga líka.

Hér er gott tækifæri til að láta gott af sér leiða!

Nánar um verkefnin

  • Í flestum ríkjum þriðja heimsins nýtur fólk mjög takmarkaðrar
    menntunar og heilsugæslu sem kemur í veg fyrir þróun samfélagsins.
  • Haiti er fátækasta ríki á vesturhveli jarðar þar sem ólæsi er
    yfir 70 af hundraði.
  • Húmanistar á Haiti undir forystu Péturs Guðjónssonar hafa
    komið á fót umfangsmiklu menntunarátaki til að útrýma ólæsi í
    þjóðfélaginu.
  • Þetta menntaverkefni fer fram í hundruðum skóla og
    menntunarmiðstöðva og byggist nær alfarið á atorku og frumkvæði
    heimamanna.
  • Fjárframlög Íslendinga standa straum af launum kennara sem
    eru þeir einu sem taka laun fyrir störf sín að átakinu.
  • Við getum gert gagn og bætt lífsskilyrði meðbræðra okkar m.a.
    með því leggja fram lága fjárhæð sem fer óskipt til að
    menntaverkefnisins á Haiti.

SAMHYGÐ Í VERKI

Auk þessu að standa að lestrarverkefni þessu á Haiti hefur landi okkar, Pétur Guðjónsson, í rúman áratug varið ómældum tíma og peningum í önnur þróunarverkefni á eyjunni Hispaniola í Karabíska hafinu.Annarsvegar hafa verið um að ræða litlar heilsugæslustöðvar eða sjúkraskýli á landsbyggðinni í Dóminíska Lýðveldinu sem hefur verið komið á fót af heimamönnum í húmanistahreyfingunni en Pétur hefur verið óþreytandi að aðstoða þá við skipulagningu, þjálfun og þar hefur tekist að virkja fagfólk í heilbrigðisgeiranum í þéttbýlinu til að vinna sem sjálfboðaliðar í þessu verkefni. Faðir Péturs, Guðjón Guðnason heitinn
fæðingarlæknir fór í upphafi með honum til að leggja á ráðin með þetta átak.

Á Haiti sem er á sömu eyju hafa verkefnin beinst að menntun íbúanna. Á Haiti eru meira en 7 af hverjum 10 íbúum ólæsir. Eina von almennings er að taka lestrarkennsluna í eigin hendur, því ríkisstjórn landsins hefur ekki séð sér fært að veita þegnum sínum þessi sjálfsögðu mannréttindi. Af þessum sökum hefur Mouvman Imanis Aysieyen, Húmanistahreyfinginn á Haiti, (sem Pétur kom á fót)hafist handa við að kenna 6 milljónum Haitibúa lestur og skrift. Hér er um að ræða annars vegar fullorðinskennslu þar sem þeir sem lært hafa kenna síðan öðrum, og einnig barnaskóla oft í frumstæðu húsnæði, en í öllum tilfellum er verið að bæta úr brýnni þörf og efla möguleika íbúanna til að skapa sér sjálfir lífvænlega framtíð. Þarf að endurrita þessa byrjun, ef þú ákveður að endurrita málsgreinina á undan.

Leitast er við að gera þessi verkefni í vaxandi mæli sjálfbær, en þrátt fyrir það þarfnast þau enn fjárhagslegrar aðstoðar.

Þrátt fyrir gríðarlega fátækt og vanþróun landsins eru Haitibúar að leggja sig fram um að hjálpa sér sjálfir til að öðlast það sem við í hinum "þróaðri" ríkjum höfum fyrir löngu talið sjálfsagða hluti.

Það er brýn þörf á að við leggjum þessu verkefni lið ennþá og ég vona að þú getir látið eitthvað af hendi rakna. Þetta er umfangsmesta og raunhæfasta menntaverkefni sem Íslendingar eru að vinna að í þróunarlöndunum á meðan stjórnvöld hér á landi draga lappirnar við að leggja meðbræðrum okkar lið getur þú lagt þitt af mörkum.

Samhæfir verkefnisins er Pétur Guðjónsson, s: 568-9240


Hægt er að greiða inná bankareikning hjá:
Sparisjóði Vélstjóra bankanúmer 1195
höfuðbók 05
reikningur númer 403072
kennitala 480980-0349

Einnig er hægt að greiða lága upphæð mánaðarlega og þá þarftu annað
hvort að gefa okkur kortnúmer þitt og hvað þú vilt greiða á mánuði eða biðja viðskiptabankann þinn að sjá um að greiða framlag þitt reglulega inná reikning Samhygðar en sem fyrr segir er hann hjá:

Sparisjóði Vélstjóra bankanúmer 1195,
höfuðbók 05,
reikningur 403072 og
kennitalan er 480980-0349

f.h. SAMHYGÐ Í VERKI
Methúsalem Þórisson

<<