Consejo 15/ Council 15/ Ráð 15
 
www.universal-human-nation.net
 
 
   
   
 
Viðfangsefni okkar:
 
 
Andofbeldi  
 
   
   
   
  Español English  


Ráð 15 | Upplýsingar um okkur

Húmanistahreyfingin;Saga,hugmyndafræði og skipulag

Sagan

Hreyfingin kemur fram í Suður-Ameríku árið 1969 sem andsvar við heimi í kreppu. Fyrstu 12 árin einkenndust af starfi í litlum leshringjum og teymum sem lögðu stund á rannsóknir.  Á þessum árum er kenning og innra skipulag mótað og einnig eru gerðar fyrstu tilraunir til að skipuleggja félagslegar aðgerðir. Næstu 12 ár þar á eftir var áherslum breytt og félagssamtök s.s. Samfélagið til eflingar mennskunnar (Samhygð), menningarsamtök s.s. Miðstöð menninga og pólitískir flokkar eins og Húmanistaflokkurinn litu dagsins ljós. Á þessu tímabili er komið á fót kjarnahópum sem helguðu sig þessu starfi í um 50 löndum. Næsta skref hefst um ´93-´94 og er ólíkt þeim fyrri; það einkennist af starfi í grunni þjóðfélagsins, fjöldahreyfingum og félagslegum verkefnum á sviði menntunnar og heilbrigðis. Hreyfingin breiðist einnig út til fleiri landa og nýrra svæða í þjóðfélögum þar sem hún var þegar. Um þessar mundir er Hreyfingin í yfir 120 löndum og vex hratt í öllum heimsálfum.

Hugmyndafræði

Meginmarkmið hreyfingarinnar hefur ætíð verið það sama: Að leggja okkar að mörkum við mótun alheimslegrar mennskrar þjóðar eða með öðrum orðum að “gera Jörðina mennska”. Hornsteinar hugmyndafræðinnar eru fáir en mikilvægir:

  • Ekkert er æðra mannverunni á félagslegu sviði.
  • Fjölbreytni er í heiðri höfð og stuðlað að henni.
  • Engin mismunun og aðferðafræði and-ofbeldis
  • Iðkun á lögmáli samstöðunnar.
Stefna og leiðir

Við viljum að hugmyndir okkar og lausnir séu til staðar á öllum menningarsvæðum, í öllum löndum og í öllum stórborgum þar sem meirihluti fólks býr. Við notum margvísleg úrræði til að ná til fólks og skapa breytingar. allt frá því að stofna litla leshringi yfir í að skipuleggja umfangsmikil félagsleg verkefni á borð við menntaátakið okkar á Haiti og sjúkraskýli eins og við höfum komið á fót í Dóminíska Lýðveldinu. Markmiðið með öllum þessum ólíku verkefnum er samt alltaf það sama: að hjálpa fólki að hafa meiri trú á sjálfu sér, meiri trú á öðrum og á framtíðinni og vinna saman að því að skapa betri heim, þar sem hver og einn leggur af mörkum eins og hann getur í samræmi við áhuga sinn.áhuga sinn.

Innra skipulag Hreyfingarinna

Skipulag okkar byggir á sjálfstæðum ráðum sem starfa saman á Þingi Húmanista, en þar skiptast menn á skoðunum og skapa viðmiðanir. Leiðbeinendur ráðanna eru meðlimir á téðu Þingi og eru þeir nefndir “aðalsamhæfar”. Hver og einn þeirra leiðbeinir 10 samhæfum (ef aðalsamhæfir er kona þarf hún aðeins að leiðbeina 7 samhæfum því að í Hreyfingunni er stefnan sú að hvetja konur til að verða leiðbeinendur og því gilda þessi skilyrði á öllum stigum þar til jafnvægi hefur náðst milli kynjanna.) 

Samhæfar leiðbeina 10 aðalfulltrúum sem aftur leiðbeina 10 teymisfulltrúum. Að lokum leiðbeinir hver teymisfulltrúi 10 hópfulltrúum sem aftur leiðbeina 10 stuðningsmönnum hver.

Þannig leiðbeinir aðalsamhæfir u.þ.b. 10.000 félögum að viðbættum 100.000 stuðningsmönnum. Núna (maí 2003) eru um 100 ráð starfandi í heiminum með nálægt 1,000.000 virkum félögum og sennilega um 10 milljón stuðningsmenn samtals.

Allir starfa sem sjálfboðaliðar í frítíma sínum eftir því sem þeir geta.

Ef litið er til mannfjöldans í heiminum er þetta ekki mikill fjöldi, en miðað við þann mikla vöxt (veldisfall) sem er í Hreyfingunni núna verður þess skammt að bíða að tölurnar verði áhugaverðari.

Hvert ráð starfar í mismunandi löndum og á ólíkum menningarsvæðum. Á þennan hátt myndar hvert ráð nokkurskonar sjálfstæða alþjóðlega hreyfingu og samhæfir starfið með öðrum ráðum í þeim löndum þar sem fleiri en eitt ráð starfar þegar þörf krefur. Ráðin skapa hvert sína “Starfsáætlun” og aðferðir. Okkar ráð nefnist “Ráð 15” og telur nú um  tæplega 30.000 félaga. Nærri 500.000 stuðningsmenn tengjast ráðinu. Áætlun okkar er að mynda ráð í öllum heimsálfum og starfa á  fáum en mikilvægum sviðum, aðallega á sviði menntunar og heilbrigðis. En einnig eru félagslegar aðgerðir á sviði and-ofbeldis eins og verkefnið “ Samfélög fyrir heim án ofbeldis FINAL

Nánari upplýsingar veita:
Pétur Guðjónsson s: 898-3742
Netfang: petur@islandia.is
Methúsalem Þórisson s: 661-5621
Netfang: dui@islandia.is

<<